Skilmálar
Skilmálar
Almennt
Vefverslunin hvuttar.is er rekin af félaginu Kátir Hvuttar ehf., kt. 580822-0450, Dalvegi 16D, 201 Kópavogi, sem skráð er í fyrirtækjaskrá Skattsins. VSK-númer: 146009. Netfang: hello@hvuttar.is · Sími: 537 5744.
Verslun og hundasnyrtistofa: Dalvegur 16D, 201 Kópavogur. Opið mán–fös 09–16 og lau 10–13. Um bókanir á snyrtingu gilda bókunarskilmálar sem birtast við bókun.
Með því að panta á hvuttar.is samþykkir kaupandi þessa skilmála. Um viðskiptin gilda meðal annars lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.
Verð og greiðsla
Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferlinu ef valin er afhending á Dropp-stað eða heimsending. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta augljósar villur í verði eða vörulýsingu; það verð gildir sem fram kemur þegar pöntun er staðfest.
Greitt er með greiðslukorti (Visa, Mastercard, Visa Electron eða American Express) í gegnum örugga greiðslusíðu Teya. Kortaupplýsingar fara aldrei um kerfi Kátra Hvutta.
Pöntun
Pöntun er gerð með því að setja vörur í körfu, fylla út upplýsingar og greiða. Hún er bindandi þegar greiðsla hefur farið fram og staðfesting hefur verið send á netfang kaupanda. Staðfestingin er varðveitt hjá okkur og afrit fæst á hello@hvuttar.is.
Ef vara reynist uppseld eftir að pöntun berst höfum við samband við kaupanda og endurgreiðum kaupverð hennar að fullu.
Afhending
Hægt er að sækja pöntun í verslunina á Dalvegi 16D án endurgjalds, sækja hana á afhendingarstað Dropp eða fá hana senda heim. Sjá nánar í afhendingarskilmálum.
Skilaréttur
Kaupandi hefur 14 daga skilarétt samkvæmt lögum nr. 16/2016. Sjá nánar í skilarétti.
Gallaðar vörur
Reynist vara gölluð getur kaupandi krafist úrbóta, nýrrar afhendingar, afsláttar, riftunar eða skaðabóta og haldið eftir greiðslu samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Tilkynna skal um galla án ástæðulauss dráttar á hello@hvuttar.is; frestur er þó aldrei skemmri en tveir mánuðir frá því að galli uppgötvast og kvörtun má bera fram í allt að tvö ár frá afhendingu (fimm ár fyrir vörur sem ætlaður er verulega lengri endingartími).
Persónuvernd
Farið er með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu Kátra Hvutta og lög nr. 90/2018.
Ágreiningur
Rísi ágreiningur skal reynt að leysa hann í sátt. Kaupandi getur einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is). Rísi dómsmál má reka það fyrir Héraðsdómi Reykjaness, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lagareglum.
