Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Kátir Hvuttar ehf., kt. 580822-0450, Dalvegi 16D, 201 Kópavogi („Kátir Hvuttar“, „við“) er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með í vefversluninni hvuttar.is og við bókanir á snyrtingu. Farið er með upplýsingarnar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR).
Hvaða upplýsingum er safnað
- Nafni, netfangi, símanúmeri og heimilisfangi sem þú gefur upp við pöntun eða bókun.
- Upplýsingum um pantanir og viðskiptasögu.
- Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar af greiðslugáttinni Teya; við fáum hvorki aðgang að kortanúmerum né geymum þau.
- Tæknilegum upplýsingum og vafrakökum (t.d. innihaldi körfu, tæki og vafra) sem þarf til að vefurinn virki. Vafrakökur sem ekki eru nauðsynlegar eru aðeins notaðar með samþykki þínu.
Tilgangur og heimild
Upplýsingarnar eru notaðar til að afgreiða pantanir og bókanir, hafa samband vegna þeirra, veita þjónustu og uppfylla lagaskyldur, t.d. um bókhald. Heimildin er samningur við þig, lagaskylda og, þegar við á, samþykki þitt (t.d. fyrir markaðspósti, sem þú getur afþakkað hvenær sem er).
Miðlun
Upplýsingum er aðeins miðlað til þjónustuaðila sem vinna fyrir okkur: Shopify (vefverslun), Teya (greiðslur), Noona (bókanir og afgreiðslukerfi) og flutningsaðila þegar vara er send, t.d. Dropp, sem fær nafn, netfang og símanúmer viðtakanda til að geta afhent sendinguna. Shopify kann að vinna upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins og er það þá byggt á viðeigandi verndarráðstöfunum, s.s. stöðluðum samningsákvæðum. Þessir aðilar vinna aðeins með upplýsingarnar í okkar þágu. Upplýsingar eru aldrei seldar.
Varðveisla
Pöntunar- og bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs, sbr. 20. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald. Öðrum upplýsingum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu eða fara fram á að hún verði takmörkuð, fá upplýsingarnar afhentar eða fluttar til annars aðila og afturkalla samþykki hvenær sem er. Sendu beiðni á hello@hvuttar.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Hafa samband
Kátir Hvuttar ehf. · Dalvegur 16D, 201 Kópavogur · hello@hvuttar.is · 537 5744
