Skilaréttur

Skilaréttur

Kaupandi hefur 14 daga frá því að hann, eða sá sem hann tilnefnir, tekur við vörunni (síðustu vörunni ef pöntun berst í hlutum) til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga.

  • Til að nýta skilaréttinn nægir ótvíræð yfirlýsing, t.d. tölvupóstur á hello@hvuttar.is með pöntunarnúmeri eða staðlaða uppsagnareyðublaðið hér að neðan. Einnig má koma með vöruna í verslunina á Dalvegi 16D.
  • Vöru skal skila eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynnt var um að fallið sé frá kaupum. Gott er að pöntunarnúmer eða kvittun fylgi.
  • Kaupandi má skoða vöru eins og nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar og virkni. Kaupandi ber ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð hennar umfram það.
  • Innsiglaðar snyrtivörur, sjampó, tannhirðuvörur, nammi og fóður eru undanskilin skilarétti vegna lýðheilsusjónarmiða og af hreinlætisástæðum hafi innsigli þeirra verið rofið eftir afhendingu (e-liður 18. gr. laga nr. 16/2016).
  • Kaupandi greiðir kostnað við að skila vöru, nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið send.
  • Endurgreitt er inn á sama greiðslukort eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að falla frá kaupum berst. Heimilt er þó að halda endurgreiðslu eftir þar til varan hefur borist aftur eða kaupandi hefur sýnt fram á að hann hafi endursent hana, hvort sem gerist fyrr. Upphaflegur sendingarkostnaður er endurgreiddur ef allri pöntuninni er skilað.
  • Í stað endurgreiðslu getur kaupandi, ef hann óskar þess, skipt vöru fyrir aðra vöru í versluninni á Dalvegi 16D.

Gallaðar vörur: hafðu samband á hello@hvuttar.is eða í síma 537 5744. Um galla gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup, sjá skilmála.

Staðlað uppsagnareyðublað

(Fyllið út og sendið þetta eyðublað einungis ef þið óskið eftir að falla frá samningi.)

Til: Kátir Hvuttar ehf., Dalvegur 16D, 201 Kópavogur, hello@hvuttar.is

Ég/Við (*) tilkynni/tilkynnum (*) hér með að ég/við (*) falli/föllum (*) frá samningi mínum/okkar (*) um kaup á eftirfarandi vörum:
— Pantað þann (*)/móttekið þann (*):
— Pöntunarnúmer:
— Nafn neytanda/neytenda:
— Heimilisfang neytanda/neytenda:
— Undirskrift neytanda/neytenda (einungis ef eyðublaðið er sent á pappír):
— Dagsetning:
(*) Strikið út það sem á ekki við.