Afhendingarskilmálar
Afhending
Sótt í verslun (ókeypis): Dalvegur 16D, 201 Kópavogur. Pöntun er yfirleitt tilbúin til afhendingar innan sólarhrings á opnunartíma. Opið mán–fös 09–16 og lau 10–13. Hafðu pöntunarnúmerið meðferðis þegar þú sækir.
Dropp – afhendingarstaðir um allt land: Í greiðsluferlinu velur þú einn af næstu afhendingarstöðum Dropp (t.d. á bensínstöð eða í verslun). Verð birtist í greiðsluferlinu og fer eftir staðsetningu. Þú færð SMS með kóða þegar sendingin er tilbúin til afhendingar. Því er símanúmer skilyrði við pöntun.
Heimsending um allt land: 1.400 kr. Áætlaður afhendingartími er 3–5 virkir dagar.
Við sendum aðeins innanlands. Tefjist afhending látum við þig vita. Áhætta af vöru flyst til kaupanda þegar hann, eða sá sem hann tilnefnir, tekur við henni, ekki þegar hún er afhent flutningsaðila.
